Norðurlandamót Hraði og Milljón mæta í A úrslitin

  • 6. ágúst 2026
  • Fréttir

Hraði fra Skovhuset og Laura Midtgard Mynd: Cassanda Laikmets/CLfoto

B-úrslit í gæðingakeppni fóru fram seinni partinn í dag

Riðin voru tvenn B úrslit í dag í gæðingakeppni. Fyrst í A flokki og síðan B flokki.

A flokkur

Í A flokki var það Hraði fra Skovhuset og Laura Midtgard sem tryggðu sér þátttökurétt í A úrslitum með einkunnina 8,69. Næst þeim var Kolka fran Fögruhlíð og Katie Sumdin Brumpton með 8,43 í einkunn.

Íslendingar áttu engan fulltrúa í B úrslitunum en við eigum einn í A úrslitunum, Þórð Þorgeirs og Gorm fra Villanora.

Niðurstöður úr B úrslitum í A flokki
Sæti Hross Knapi Einkunn
8 Hraði fra Skovhuset Laura Midtgård 8,69
9 Kolka från Fögruhlíð Katie Sundin Brumpton 8,43
10 Grímur fra Gavnholt Ida Kvande 8,42
11 Sólrún fra Teland Steffi Svendsen 8,38
12 Sunna frá Hásæti Ingrid Tvergrov 8,29
13 Gustur frá Stóra-Vatnsskarði Caroline Agerhill 8,26
14 Golíat fra Dysterud Celine Berild Vold 8,16

 

B flokkur

Seinni úrslitin voru í B flokki en þar bar sigur úr býtum Milljón fra Bergkasa og Liv Runa Sigtryggsdottir með 8,61 í einkunn. Næst í röðinni var Rögnir frá Minni-Völlum og Maja Lindgaard með 8,55 í einkunn og Herjann fran Stenholmen og Sofie Faltsjö með 8,49 í einkunn.

Íslendingar áttu engan fulltrúa í B úrslitunum en við eigum tvo í A úrslitunum, Reynir Örn Pálmason og Þórarinn Eymundsson.

Niðurstöður úr B úrslitum í B flokki
Sæti Hross Knapi Einkunn
8 Milljón fra Bergkåsa Liv Runa Sigtryggsdottir 8,61
9 Rögnir frá Minni-Völlum Maja Lindgaard 8,55
10 Herjann från Stenholmen Sofie Fältsjö 8,49
11 Börkur frá Fákshólum Kathrine Vittrup Andersen 8,44
12 Ljúfa fra Kise Camilla Mood Havig 8,43
13 Huginn frá Halakoti Kelly Eriksson 8,42
14 Fimur frá Selfossi Lisa Lantz 8,41
15 Stæll frá Skagaströnd Valborg Laksáfoss 8,36

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link