Hreinsun reiðfatnaðar við komuna til landsins

  • 9. ágúst 2011
  • Fréttir
Hreinsun reiðfatnaðar við komuna til landsins

Eftirfarandi tilkynning barst frá Matvælastofnun:

“Á síðasta ári kom upp alvarlegur faraldur smitandi hósta í íslenska hrossastofninum af völdum bakteríusýkingu sem ekki er álitinn mikill skaðvaldur erlendis. Sá atburður sýndi glögglega hversu viðkvæmur íslenski hrossastofninn er fyrir smitsjúkdómum. Þrátt fyrir þetta áfall er stofninn enn laus við alvarlegustu smitsjúkdómana og mikilvægt er að viðhalda þeirri góðu stöðu með öflugum smitvörnum.

Samkvæmt gildandi lögum og reglum er óheimilt að flytja inn notaðan reiðfatnað til landsins nema að undangenginni hreinsun og sótthreinsun samkvæmt reglum Matvæla-stofnunar. Til að auðvelda hestamönnum að uppfylla þessar reglur hefur Landssamband hestamannafélaga fyrir hönd félagasamtaka hestamennskunnar, nú samið við Fatahreinsunina Fönn um að taka við notuðum reiðfatnaði í rauða hliðinu á Keflavíkurflugvelli og skila fullhreinsuðum til eiganda fáum dögum síðar. Matvælastofnun hefur unnið starfsreglur fyrir fatahreinsunina í samstarfi við tollgæsluna:

Óhreinan reiðfatnað skal framvísa í „rauða hliðinu“ í tollinum í lokuðum plastpokum. (Með reiðfatnaði er átt við reiðbuxur hverskonar, reiðjakka,  –úlpur, -skó,  –stígvél og -hjálma en þessa þjónustu má einnig nýta fyrir annan fatnað og skófatnað sem notaður hefur verið í umhverfi hesta erlendis . Ekki er þó tekið við leður- og vaxjökkum.) Viðkomandi hestamenn skulu gera vart við sig í „rauða hliðinu“ í flugstöðinni og framvísa fatnaðinum þar til tollvarða. Tollverðir sjá til þess að fatnaðurinn, ásamt upplýsingum um eiganda,  fari í sérstaka kassa sem þeir hafa í sinni vörslu þar til þeir eru sóttir af fatahreinsuninni. Að lokinni hreinsun verður fatnaðurinn sendur í póstkröfu til eiganda.

Komi farþegar með óhreinan reiðfatnað í græna  hliðið við tollgæslu á Keflavíkurflugvelli eða verði vísir að því að vera með óhreinan reiðfatnað við tollskoðun í græna hliðinu, verður litið á slíkt sem smygl. Varningurinn er þá gerður upptækur  og viðkomandi kærður. Sama á við um sendingar sem innihalda óhreinan reiðfatnað og koma til landsins með pósti, skipa- eða flugfrakt.

Ráðstöfun þessi tekur ekki til notaðra reiðtygja, reiðhanska eða annars búnaðar sem notaður hefur verið í hestamennsku enda er innflutningur á slíkum varningi óheimill.

Hér er  um að ræða úrræði fyrir þá hestamenn sem ekki eru í aðstöðu til að þrífa  og sótthreinsa notaðan reiðfatnað áður en komið er til landsins.  

Íslenska landsliðið í hestaíþróttum verður fyrst til að nýta sér þessa þjónustu við komuna til landsins að loknu Heimsmeistaramóti íslenska hestsins sem var haldið 1. til 7. ágúst í St. Radegund í Austurríki.

 

LEIÐBEININGAR

Innflutningur á notuðum reiðfatnaði/-tygjum

Hér er að finna reglur um innflutning á notuðum reiðfatnaði/reiðtygjum til varnar því að smitsjúkdómar berist í

íslenska hrossastofninn. Reglurnar eru byggðar á lögum  um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og

reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

Óheimilt að flytja til landsins

1. Notuð reiðtygi, þ.m.t. mél, hlífar, ábreiður og annan búnað sem notaður hefur verið í hestamennsku

2. Notaða reiðhanska

3. Ósótthreinsuð reiðföt, þ.m.t. hjálma og skófatnað og annan óhreinan fatnað sem notaður hefur verið

í umhverfi hesta

4. Notaðar landbúnaðarvélar og áhöld, þ.m.t. járningaáhöld, hestakerrur og önnur tæki sem notuð hafa

verið í landbúnaði

Mikil áhætta er fólgin í innflutningi notaðra reiðtygja, méla og annars búnaðar og áhalda sem notuð eru í

hestamennsku og er hann því alfarið bannaður. Notaðir reiðhanskar eru ennfremur taldir bera með sér

sérlega mikla smithættu og teljast því með búnaði sem bannað er að koma með til landsins.

Reglur um sótthreinsun á fatnaði og skóm sem notaður hefur verið í umhverfi hesta erlendis 

Notaðir reiðskór/stígvél og annar skófatnaður  sem notaður hefur verið í umhverfi hesta erlendis

Sótthreinsun: Skófatnaðurinn skal þveginn vel og þurrkaður. Þar á eftir úðaður með Virkoni

og látinn þorna og bíða í 5 daga eftir sótthreinsun áður en hann er notaður í umhverfi hesta

á Íslandi

Notaðir reiðhjálmar:

Sótthreinsun: Hjálmar skulu þvegnir vel með sápulegi og þurrkaðir. Þar á eftir úðaðir með

Virkoni og látnir þorna og bíða í 5 daga eftir sótthreinsun áður en þeir eru notaðir í umhverfi

hesta á Íslandi

Notaður reiðfatnaður og annar fatnaður sem notaður hefur verið í umhverfi hesta erlendis 

Ígildi sótthreinsunar: Fatnaðurinn skal þveginn í þvottavél og þurrkaður eða þurrhreinsaður. 

Þvottur/hreinsun á reiðfatnaði og sótthreinsun á reiðskóm skal eiga sér stað áður en komið  er til

landsins. Að öðrum kosti skal framvísa notuðum reiðfatnaði, þ.m.t. hjálmum og skófatnaði  í rauða

hliðinu á Keflavíkurflugvelli og nýta hreinsiþjónustu með heimsendingu sem þar er í boði gegn gjaldi.

Fatahreinsunin tekur ekki við leður- og vaxjökkum.

Annan fatnað sem notaður hefur verið í umhverfi hesta er heimilt að flytja inn í lokuðum plastpokum og

hreinsa samkvæmt framangreindum leiðbeiningum strax eftir heimkomu.

Að gefnu tilefni er tekið fram að frysting er ekki sótthreinsun. Hún getur þvert á móti lengt líftíma tiltekinna

smitefna.

Önnur góð ráð fyrir hestamenn sem ferðast til annarra landa

Hafið ævinlega með ykkur hreinan fatnað og skó til heimferðar 

Veljið fatnað til notkunar í umhverfi hesta erlendis sem auðvelt er að þvo og hreinsa

Notið ekki leðurfatnað og vaxjakka svo eitthvað sé nefnt

Veljið fatnað til notkunar í umhverfi hesta erlendis sem ekki er notaður í hestamennsku hér heima

þann fatnað þarf samt að þvo og sótthreinsa skv. framangreindum reglum

Þeir sem ferðast mikið milli landa ættu að geyma fatnað á bækistöðvum sínum erlendis.”

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link