Þýskaland Hrikalegur efstur á kynbótasýningu í Mandelbachtal

  • 12. ágúst 2024
  • Fréttir

Isabelle og Hrikalegur í keppni. Ljósmynd: Neddens Tierfoto

Í síðustu viku fór fram kynbótasýning í Mandelbachtal í Þýskalandi þar sem 13 hross voru sýnd og þar af 12 í fullnaðardómi. Dómarar á sýningunni voru þau Jhon Siiger Hansen og Silke Feuchthofen.

Hæst dæmda hross sýnigarinnar var stóðhesturinn Hrikalegur frá Upphafi sem er sjö vetra gamall leirljós blesóttur að lit undan Hrannari frá Flugumýri II og Prinsessu frá Blönduósi, ræktendur hans eru þau Helga Una Björnsdóttir og Hjálmar Þór Aadnegard. Sýnandi hans var Isabelle Füchtenschnieder.  Hann hlaut 8,11 fyrir sköpulag og þar af 9,0 fyrir samræmi fyrir hæfileika hlaut hann 7,96 og í aðaleinkunn 8,02.

Isabelle og Hrikalegur. Ljósmynd: Neddens Tierfoto

Isabelle Füchtenschnieder sýndi líka næst hæst dæmda hrossið en það var 6.vetra gamall stóðhestur, Patrekur frá Holtsmúla 1 undan Stormi frá Leirulæk og Páskalilju frá Þorlákshöfn ræktaður af Þóru Bjarnadóttur og Úrvalshestum.

Hér fyrir neðan má sjá hross dæmd á sýningunni, ein sýning er áætluð til viðbótar í Þýskalandi en hún fer fram dagana 26.-29. ágúst.

 

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
IS2017101366 Hrikalegur frá Upphafi 8.11 7.96 8.02 Isabelle Füchtenschnieder
IS2018181108 Patrekur frá Holtsmúla 1 8.1 7.93 7.99 Isabelle Füchtenschnieder
IS2018101720 Bangsi frá Hrafnshóli 8.24 7.6 7.83 Jens Füchtenschnieder
IS2016264066 Sjón frá Garðshorni á Þelamörk 7.81 7.75 7.78 Isabelle Füchtenschnieder
DE2014163004 Heimdallur von Cubera 7.69 7.77 7.74 Annabell Brück
IS2018181100 Skorri frá Holtsmúla 1 8 7.52 7.69 Isabelle Füchtenschnieder
DE2016263722 Fabúla vom Grenzland 7.79 7.52 7.62 Catherine Roser
IS2014186940 Sindri frá Árbæ 7.91 7.19 7.45 Stefanie Bahn
IS2016101567 Svarti-Grátur frá Broddaborg 8.1 7.08 7.44 Isabelle Füchtenschnieder
DE2014263392 Bjalla von den Uhlen 7.66 7.2 7.36 Stefanie Bahn
DE2014263252 Dísa vom Ernstweilerhof 7.69 6.88 7.16 Stefanie Bahn
IS2016281603 Hátign frá Pulu 7.92 6.63 7.08 Mw. T. Peperkamp
IS2016257310 Aría frá Glæsibæ 8.11 Friðrik Þór Stefánsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link