Hrímnir frá Ósi glæsilegur fulltrúi föður síns
Hrímnir frá Ósi er eitt margra afkvæma Rökkva frá Hárlaugsstöðum sem eru að gera það gott í keppni þessa dagana. Rökkvi virðist vera meiri keppnishestafaðir en „kynbótafaðir“. Hann á 13 afkvæmi í keppni á LM2012, aðeins Orri og Gustur frá Hóli eiga fleiri, og slær þar við meðal annars Sæ frá Bakkakoti, sem er jafngamall Rökkva en kominn með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í kynbótamati. Hrímnir er viljamikill og hágengur töltari, flugrúmur, og er á toppi á B flokki á LM2012. Knapi Guðmundur Björgvinsson.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH