Hrímnir með lið
Hrímnisliðið sigraði liðakeppnina í KS deildinni í fyrra.
Þriðja liðið sem við kynnum í KS-Deildinni eru sigurvegararnir frá því í fyrra, lið Hrímnis. Liðstjóri þessa liðs er Þórarinn Eymundsson og með honum eru Hörður Óli Sæmundarson, Líney María Hjálmarsdóttir og nýr inn kemur Valdimar Bergstað.
Þetta lið er skipað reynslumiklum knöpum. Innanborðs eru margfaldir íslandsmeistarar og heimsmeistarar. Þarna er mikið keppnisfólk á ferðinni og verður örugglega ekkert gefið eftir til að halda titlinum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH