Hringferð Eiðfaxa
Í fyrramálið halda blaðamenn Eiðfaxa af stað í ferð hringinn í kringum landið að hitta hestamenn. Fyrst er ferðinni er heitið austur um og geta hestamenn á suður og suðausturlandi átt von á heimsókn á morgun. Svo verður ferðinni framhaldið hringinn en áætluð ferðalok eru á þriðjudag.
Allar ábendingar um áhugaverða viðmælendur eru vel þegnar en ábendingum er er hægt að koma til okkar í email [email protected] eða í síma 8661230.
Hægt verður að fylgjast með ferðum okkar á fésbókarsíðu blaðsins en jafnframt verður ferðinni gerð góð skil í sjónvarpi Eiðfaxa og í næstu blöðum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum