Hringur frá Fossi til Hollands

  • 28. nóvember 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Hringur frá Fossi, knapi Sigurður V. Matthíasson.

Kaupandinn er Blitterswijk fjölskyldan í Hollandi, sem á stóðhestinn Keili frá Miðsitju í félagi við Sigurð V. Matthíasson og Eddu Rún Ragnarsdóttur.

Stóðhesturinn Hringur frá Fossi hefur skipt um eigendur og er á leið til Hollands. Hann er átta vetra undan Kletti frá Hvammi og Ellu frá Dalsmynni, Geysisdóttur frá Dalsmynni.

Hringur var sýndur á LM2011 og hlaut þar 8,06 fyrir sköpulag, 8,78 fyrir kosti og 8,49 í aðaleinkunn. Hann er með 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir vilja og fet. Sýnandi Sigurður V. Matthíasson sem hefur einnig keppt á hestinum í íþrótta- og gæðingakeppni. Hann varð sjötti í A flokki gæðinga á LM2012 með 8,71 og Reykjavíkurmeistari í fimmgangi í 1. flokki.

Ræktandi Hrings er Ragnar Hinriksson og seljandi er kona hans Helga Kristín Claessen. Kaupandi er Blitterswijk fjölskyldan í Hollandi, en hún á einnig stóðhestinn Keili frá Miðsitju í félagi við Sigurð V. Matthíasson og Eddu Rún Ragnarsdóttur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link