Hrókur frá Efsta-Dal II efstur

  • 2. júní 2012
  • Fréttir
Hrókur frá Efsta-Dal II efstur

Fyrri vikan búin á Gaddstaðaflötum á Hellu. Guðmundur Friðrik Björgvinsson var þar með efsta hrossið, hann Hrók frá Efsta-Dal II. Hrókur hlaut 8,61 fyrir sköpulag og 8,27 fyrir hæfileika. Það er þó nokkuð hækkun frá síðasta Landsmóti en þá var Hrókur með 8,55 fyrir sköpulag og 8,09 fyrir hæfileika. 

Annar á sýningunni var Jarl frá Árbæjarhjáleigu II. Hann hækkaði sig líka frá síðasta Landsmóti en Jarl hlaut 8,36 fyrir sköpulag og 8,40 fyrir hæfileika nú á Hellu.
 
Lena Zielenski sýndi fjögra vetra Álfssoninn Prinsinn frá Efra-Hvoli í 8,14 og þar með er hann komin inná Landsmót. Þórður Þorgeirsson sýndi hana Karmen frá Blesastöðum, 4 vetra Kráksdóttur, sem einnig er komin inná Landsmót Karmen hlaut 9,0 fyrir tölt, fegurð í reið og vilja og geðslag. 8,20 í hæfileika og 8,05 fyrir sköpulag. 
 
Meðfylgjandi eru dómar Hróks og Jarls
 
IS2007188906 Hrókur frá Efsta-Dal II
Örmerki: 968000004781205
Litur: 2553 Brúnn/milli- blesótt vagl í auga
Ræktandi: Björg Ingvarsdóttir, Snæbjörn Sigurðsson
Eigandi: Björg Ingvarsdóttir, Snæbjörn Sigurðsson
F.: IS1995135993 Hróður frá Refsstöðum
Ff.: IS1992135930 Léttir frá Stóra-Ási
Fm.: IS1989235990 Rán frá Refsstöðum
M.: IS1989288806 Von frá Laugarvatni
Mf.: IS1984151101 Stígandi frá Sauðárkróki
Mm.: IS1985287020 Krás frá Laugarvatni
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Gaddstaðaflötum
Mál (cm): 148 – 133 – 139 – 67 – 149 – 39 – 47 – 43 – 6,9 – 31,5 – 20,0
Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,0
Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 = 8,61
Hæfileikar: 8,5 – 8,0 – 7,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 = 8,27
Aðaleinkunn: 8,41      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,0
Sýnandi: Guðmundur Friðrik Björgvinsson
 
IS2007186992 Jarl frá Árbæjarhjáleigu II
Örmerki: 352098100015008
Litur: 1541 Rauður/milli- tvístjörnótt glófext
Ræktandi: Guðmundur Þór Þórhallsson, Marjolijn Tiepen
Eigandi: Marjolijn Tiepen, Marjolijn Tiepen
F.: IS1998187002 Stáli frá Kjarri
Ff.: IS1990157003 Galsi frá Sauðárkróki
Fm.: IS1991286414 Jónína frá Hala
M.: IS2001286998 Elding frá Árbæjarhjáleigu II
Mf.: IS1991157345 Hugi frá Hafsteinsstöðum
Mm.: IS1991286400 Fána frá Hala
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning á Gaddstaðaflötum
Mál (cm): 138 – 130 – 136 – 62 – 142 – 38 – 46 – 43 – 6,5 – 30,5 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,1 – V.a.: 8,4
Sköpulag: 7,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 9,0 – 7,5 – 9,0 – 9,0 = 8,36
Hæfileikar: 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 7,5 = 8,40
Aðaleinkunn: 8,38      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Marjolijn Tiepen
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link