Hross fyrir fullorðna

  • 1. ágúst 2012
  • Fréttir
Á Flugumýri II í Skagafirði eru ræktuð hross sem bera af fyrir stærð og myndarskap.

Hrannar frá Flugumýri II hlaut hæstu aðaleinkunn kynbótahrossa á LM2012 ásamt Arion frá Eystra-Fróðholti, 8,67. Arion fékk sérstök verðlaun FEIF sem hæst dæmda kynbótahrossið í einstaklingssýningum þar sem hann er hærri fyrir hæfileika. Hrannar hlaut hins vegar 8,85 í forskoðun og þar af 9,16 fyrir kosti, þar af 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja, og 9,0 fyrir skeið, fegurð og hægt tölt, samræmi og hófa.

Hrannar er einn nokkurra hátt dæmdra stóðhesta sem fram hafa komið frá Flugumýri II á undanförnum áratug. Flestir þeirra eru stórir og fallegir í meira lagi og flest hrossin í ræktunarbússýningu búsins á LM2012 voru 143 til 148 sentimetrar á stöng, eða 150 til 155 sentirmetrar á bandmál. Óhætt er því að segja að á Flugumýri II séu ræktuð hross fyrir fullorðna, alla vega fullvaxna.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link