Hrossakjötsveisla 7. janúar
Limsfélagið og hrossaræktardeild Fáks hefur vetrarstarfið 2012 af fullum krafti með árlegri hrossakjötsveislu í félgsheimili Fáks laugardagskvöldið 7. janúar n.k. Dagskrá verður hefðbundin með ræktunarþema og mun hinn óviðjafnanlegi Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra og hestaunnandi taka þátt og tala um hestamennsku í víðasta skilningi og léttum dúr eins og honum er einum lagið, mun það áræðanlega blása nýjum krafti í hestamenn í upphafi nýs árs.
Matseðill verður einfaldur enn umfram allt góður :
Saltað og reykt hrossakjöt með gamla laginu
Hrossabjúgu / kartöflustappa (mús)
Kartöflur og uppstúf
Rauðkál og grænar
Miðaverð 3.500 kr
Miðapantanir [email protected] fyrir 5 janúar.
Nánari upplýsingar veitir Helgi GSM 698-8370 og á www.limur.123.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson