Hrossamarkaður í Votmúla

  • 2. maí 2011
  • Fréttir
Hrossamarkaður í Votmúla

Hrossauppboðsmarkaður verður haldinn í Votmúla laugardaginn 7. maí  kl. 16. Til sölu verða hross á öllum aldri og öllum stigum tamningar, efnileg unghross, reiðhross, og keppnishross undan Hruna frá Breiðumörk, Vals frá Efra-Seli, Álmi frá Skjálg, Segli frá Reykjakoti o.fl.

Unghrossin verða rekin til og tamin hross sýnd í reið. Einnig verða boðnir upp folatollar undir Vals frá Efra-Seli sem er efnilegur foli undan Álfi frá Selfossi og Villirós frá Feti (1.v.).

Hrossin eru öll frá Efra-Seli en nýlega lést bóndinn og tamningamaðurinn Þórir Níels Jónsson snögglega úr krabbameini. Því eru nú til sölu hross úr ræktun hans og konu hans Áslaugar Fjólu. 5% af allri sölu mun renna óskipt til krabbameinsdeildar Landspítalans.

Taktu þátt í skemmtilegri markaðs stemningu, leggðu Áslaugu lið, og gerðu góð kaup. Hinn landsfrægi Steindór Guðmundsson mun halda utan um míkrafóninn.

Síðar í vikunni mun betur verða upplýst um þau hross sem verða boðin til kaups.

Nefndin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link