Hrossaræktardagur á Vindheimamelum
Þann 3. júlí verður haldinn Hrossaræktardagur á Vindheimamelum í Skagafirði. Á dagskránni eru m.a. yfirlitssýning kynbótahrossa, stóðhestakynning og ræktunarbússýningar. Nánari dagskrá auglýst síðar.
Þátttaka er öllum opin. Þeir sem hafa áhuga á að koma hrossum á framfæri á þessum degi hafi samband við Eyþór Einarsson (862-6627/[email protected]).
Þrátt fyrir að ekkert verði af Landsmóti verður ýmislegt um að vera í Skagafirði dagana sem mótið átti að vera en blásið hefur verið til Sumarsælu og Hrossaræktardagurinn er liður í henni.
HSS
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH