Verðlaunaveitingar hjá Hrossaræktarfélagi Flóahrepps

  • 3. september 2021
  • Fréttir

Þar sem Covid var enn í fullum gangi í mars/apríl þegar venja er hjá Hrossaræktarfélagi Flóahrepps að halda uppskeruhátíð til að verðlauna hrossaræktendur í félaginu fyrir kynbótahross sýnd árið 2020. Því fóru stjórnarmenn og gerðust víðförlir til að afhenda verðlaunin til þeirra félagsmanna sem fengu slík. Þetta var annað árið í röð sem þessar viðurkenningar eru afhentar með þessum hætti.

Hér á eftir eru kynnt stuttlega til leiks þau hross sem fengu verðlaun í hverjum aldursflokki. Nánari kynning á þessum verðlaunaveitingum ásamt myndum og upplýsingum um hvert hross á finna hér í litlu myndbandi á Youtube rás félagsins (https://www.youtube.com/watch?v=PrJLPytWOec)

Verðlaunuð eru 3 efstu hross í hverjum aldurflokki með eignagrip ásamt því sem efsta sætið fær afhentan farandgrip til varðveislu.

4 vetra hryssur

1.sæti    Drift frá Austurási             8,24
2. sæti    Díva frá Austurási              8,13
3. sæti    Dögun frá Austurási             8,05

4 vetra stóðhestar

1 sæti    Goði frá Oddgeirshólum 4        8,07
2 sæti    Dagur frá Austurási             8,03
3 sæti    Kafteinn frá Skúfslæk           7,94

5 vetra hryssur

1 sæti    Þyrnirós frá Ragnheiðarstöðum   8,27
2 sæti    Fiðla frá Seljatungu            8,25
3 sæti    Hera frá Ragnheiðarstöðum       8,20

5 vetra stóðhestar

1 sæti    Hilmir frá Hamarsey                     8,35
2 sæti    Svartálfur frá Syðri-Gegnishólum        7,92

6 vetra hryssur

1 sæti    Krafla frá Austurási            8,54
2 sæti    Hávör frá Ragnheiðarstöðum      8,46
3 sæti    Ugla frá Syðri-Gegnishólum      8,26

6 vetra stóðhestar

1 sæti    Viðar frá Skör                  8,89
2 sæti    Gígur frá Ketilsstöðum          8,46
3 sæti    Sindri frá Syðra-Velli          8,43

7 vetra og eldri hryssur

1 sæti    Hrönn frá Ragnheiðarstöðum      8,59
2 sæti    Spurning frá Syðri-Gegnishólum  8,58
3 sæti    Bylgja frá Seljatungu           8,54

7 vetra og eldri stóðhestar
1 sæti    Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum       8,94
2 sæti    Starkar frá Egilsstaðakoti              8,47
3 sæti    Glampi frá Ketilsstöðum                 8,43

Þá eru verðlaunuð hæst dæmdu kynbótahross innan félagsins, hryssa og stóðhestur, að teknu tilliti til aldursleiðréttingar á aðaleinkunn. Þessi verðlaun getur hvert hross hlotið einu sinni. Það er því ekkert endilega hæst dæmda hross félagsins sem hlýtur þessi verðlaun.

Hæst dæmda hryssa Flóahrepps árið 2020

Krafla frá Austurási    8,54 – 8,59 (leiðrétt)

Hæst dæmdi stóðhestur Flóahrepps 2020

Gígur frá Ketilsstöðum  8,46 – 8,53 (leiðrétt)

Einnig veiti félagið í fyrsta sinni nýjan verðlaunagrip gefin af Olil og Berg í Syðri-Gegnishólum/Ketilsstöðum sem afhentur er hæst dæmda kynbótahrossinu í eigu félagsmanns. Þessi verðlaun hlaut árið 2020:

Hæst dæmda kynbótahrossið í eigu félagsmanns

Fenrir frá Feti í eigu Ármanns Sverrissonar með aðaleinkunn uppá 8,57

Heimasíða félagsins er https://hrossaraektarfelagfloa.wordpress.com/ og facebooksíða félagsins – https://www.facebook.com/Floahreppurhross. Þarna eru fluttar fréttir af félaginu, hægt að gerast áskrifandi að fréttum og fleira skemmtilegt fyrir þá sem vilja fylgjast með. Félagið stefnir á að halda skemmtikvöld í haust í stað þeirra viðburða sem ekki hefur verið hægt að halda síðasta árið.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link