Hrossaræktarfundir – Fundarferð um landið
Fundir um málefni hrossaræktarinnar hefjast fljótlega en Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
- Nýtt ræktunarmarkmið í hrossarækt
- Dómskalinn – þróun og betrumbætur
- Nýir vægistuðlar eiginleikanna
- Málefni og starf Félags hrossabænda
Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.
Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum – ATH breyttan fundardag í Borgarnesi:
19.febrúar miðvikudagur Hafnarfjörður – Reiðhöll Sörla kl. 20:00.
20.febrúar fimmtudagur Borgarnes – félagsheimili Borgfirðings kl. 20:30.
25.febrúar þriðjudagur Höfn í Hornafirði – Fornustekkar kl. 20:00
26.febrúar miðvikudagur Austurland – Iðavellir kl. 20:00
2.mars mánudagur Suðurland – reiðhöllin á Hellu kl. 20:00.
5.mars fimmtudagur Ljósvetningabúð kl. 20:00.
6.mars föstudagur Skagafjörður – Tjarnarbær kl. 20:00.
10.mars þriðjudagur Vestur-Húnavatnssýsla – Gauksmýri kl. 20:00.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.