Hrossaræktarsamband Eyfirðinga- og Þingeyinga gera upp liðið ár

  • 30. mars 2020
  • Fréttir

Á myndinni eru þau Birna Tryggvadóttir Thorlacius og Baldvin Kr. Baldvinsson

9Hrossaræktarsamband Eyfirðinga- og Þingeyinga (HEÞ) verðlaunaði efstu hross og bú félagsmanna sinna fyrir árið 2019 á dögunum.

Það bú sem hlutskarpast var á liðnu ári og kjörið ræktunarbú HEÞ 2019 var Garðshorn á Þelamörk. Þar rækta þau Agnar Þór og Birna hross.

Hæst dæmda kynbótahross félagsmanns HEÞ kom í hlut Baldvins Kr. Baldvinssonar, var það hesturinn Þór frá Torfunesi sem hlaut titilinn í ár. Ræktunarbú á félagsvæði HEÞ voru dugleg að mæta með hross í dóm og árangur ársins 2019 var góður í heildina. Hér að neðan má sjá niðurstöður ársins hjá efstu hrossum félagsmanna, tilnefnd bú ofl.

Hæst dæmdu kynbótahrossin 2019 ræktuð af félagsmönnum HEÞ

Flokkur stóðhesta 4.vetra

1.sæti Leynir frá Garðshorni á Þelamörk
B: 8,35 – H: 8,70 – Ae: 8,56

2.sæti Glundroði frá Garðshorni á Þelamörk
B: 8,53 H: 8,25 Ae: 8,37

3.sæti Kakali frá Garðsá
B: 8,63 H: 7,82 Ae: 8,14

Flokkur: hryssur 4. Vetra
1.sæti
Hreyfing frá Akureyri
B: 8,13 – H: 8,24 – Ae: 8,19
Leiðrétt Ae: 8,39

2.sæti
Þrift frá Ytra-Dalsgerði
B: 8,08 – H: 7,66 – Ae: 7,83
Leiðrétt Ae: 8,03

Flokkur: Stóðhestar 5. Vetra

1.sæti Kastor frá Garðshorni á Þelamörk
B: 8,21 – H: 8,62 – Ae: 8,45

2.sæti Biskup frá Brúnum
B: 8,24 H: 8,35 Ae: 8,31

3.sæti Tangó frá Litla Garði
B: 8,20 H: 8,28 Ae: 8,25

Flokkur: hryssur 5. Vetra

1.sæti
Krækja frá Kommu
B: 8,21 – H: 8,54 – Ae: 8,41

2.sæti
Eivör frá Torfunesi
B: 8,20 – H: 8,42 – Ae: 8,33

Birna frá Garðshorni á Þelamörk
B: 8,20 – H: 8,27 – Ae: 8,24

Flokkur: Stóðhestar 6. Vetra
1. .sæti
Þór frá Torfunesi
B: 8,76 – H: 8,83 – Ae: 8,80

2. .sæti
Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
B: 8,76 – H: 8,83 – Ae: 8,80

3. .sæti
Smári frá Sauðanesi
B: 8,44 – H: 8,32 – Ae: 8,37

Flokkur: hryssur 6. Vetra

1.sæti
Urður frá Akureyri
B: 8,29 – H: 8,67 – Ae: 8,52

Flokkur: hryssur 6. Vetra

2.sæti
Evíta frá Litlu Brekku
B: 8,26 – H: 8,67 – Ae: 8,51
3.sæti
Alda frá Syðra-Brekkukoti
B: 8,26 – H: 8,67 – Ae: 8,51

Flokkur: stóðhestar 7. Vetra og eldri
1.sæti
Ljúfur frá Torfunesi
B: 8,36 – H: 8,58 – Ae: 8,49

2.sæti
Hljómur frá Gunnarsstöðum
B: 8,24 – H: 8,23 – Ae: 8,24

3.sæti
Órói frá Sauðanesi
B: 7,98 – H: 8,28 – Ae: 8,16

Flokkur: hryssur 7. Vetra og eldri
1.sæti
Hremmsa frá Álftagerði
B: 8,36 – H: 8,53 – Ae: 8,46

2.sæti
Hylling frá Akureyri
B: 8,09 – H: 8,66 – Ae: 8,43

3.sæti
Kólga frá Hrafnsstöðum
B: 8,25 – H: 8,20 – Ae: 8,22

Hæst dæmda kynbótahross ársins 2019 hjá HEÞ

Þór frá Torfunesi
B: 8,76 – H: 8,83 – Ae: 8,80

Ræktunarbú ársins 2019

Garðshorn á Þelamörk

Ræktendur: Birna Tryggvadóttir Thorlacius og Agnar Þór Magnússon

Tilnefnd ræktunarbú HEÞ árið 2019

Torfunes
Ræktandi: Baldvin Kr. Baldvinsson

Litla-brekka
Ræktendur: Vignir Sigurðsson og Jónína Garðasdóttir

Sauðanes
Ræktandi: Ágúst Marinó Ágústsson

Litli-Garður
Ræktendur: Stefán Birgir Stefánsson og Herdís Ármannsdóttir

Brúnir
Rætendur: Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason

Ysta Gerði
Ræktendur: Þórhallur Rúnar Þórhallsson og Sara Arnbro

Ytra-Dalsgerði
Ræktandi: Kristinn Hugason

Syðra-Brekkukot
Ræktendur: Albert Jensen og Britta G.Jensen

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link