Hrossaræktarsamtök Suðurlands styrkja tímamótarannsókn
Á aðalfundi Hrossaræktarsamtaka Suðurlands, sem haldinn var í gærkvöldi á Selfossi, kynnti Sigurbjörg Þorsteinsdóttir Dr.Med.Sc. ónæmisfræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum nýjustu niðurstöður í rannsóknum á sumarexemi í íslenskum hrossum.
Fjallaði hún í erindi sínu um rannsóknir á svokölluðu smámýsofnæmi sem leiðir til sumarexems, rannsóknum á bólusetningum við meininu og afnæmingu hesta með þess háttar sumarexem. Um 50% þeirra hrossa sem flutt eru til þeirra svæða sem smámý þrýfst sýkist af smámýsofnæmi. Fram kom í máli Sigurbjargar að farið er að sjá til lands í rannsóknunum sem mun koma til með að leiða af sér bóluefni gegn ofnæminu.
Fundarmenn á aðalfundinum voru afar hrifnir af erindi Sigurbjargar og ákváðu í framhaldi af því að styrkja verkefnið um 6 milljónir króna, sem ætlað er að tryggja fjármögnun verkefnisins út árið. Telja félagsmenn samtakanna lækningu við sumarexemi eitt helsta baráttumál útflytjenda íslenskra hesta og myndi lækning við því gjörbreyta forsendum á útflutningi til þeirra svæða sem smámý þrýfst.
Hrossaræktarsamtök Suðurlands skora enn fremur á að önnur hrossaræktarsamtök og önnur hagsmunasamtök greinarinnar fylki sér að baki þessari merku rannsókn.
Nánar verður fjalla um niðurstöður rannsóknarinnar í 3. tölublaði Eiðfaxa.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH