Hrossaræktin 2015
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í Samskipahöllinni í Spretti, laugardaginn 7. nóvember nk. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er sérstaklega hvatt til að mæta. Að venju verða ræktunarbú sem skarað hafa fram úr á árinu heiðruð og veittar viðurkenningar til heiðursverðlaunahryssna sem og hæst dæmdu einstaklinga ársins. Þá verður flutt afar spennandi erindi er varðar markaðssetningu íslenska hestsins.
Aðalfundur Félags hrossabænda fer fram deginum áður og hefst kl. 10 á Hótel Sögu, en hann sitja kjörnir aðalfundarfulltrúar allra níu aðildarfélaga FHB. Þá verður Uppskeruhátíð hestamanna haldin þessa sömu helgi á vegum LH og FHB en hún fer fram laugardagskvölidð 7. nóvember. Fagráð í hrossarækt hvetur allt áhugafólk um hrossarækt og hestamennsku til að láta ekki ráðstefnuna framhjá sér fara – fræðast, segja sína skoðun og samgleðjast þeim sem skarað hafa framúr í ræktunarstarfinu í ár.
Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:
Laugardagur 7. nóvember 2015
13:00 Setning – Sveinn Steinarsson formaður fagráðs og FHB
13:10 Hrossaræktarárið 2015 – Niðurstöður kynbótamats og fl. Þorvaldur Kristjánsson
13:30 Heiðursverðlaunahryssa fyrir afkvæmi 2015
13:45 Verðlaunaveitingar:
-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt)
-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
-Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins
14:10 Viðurkenningar fyrir ræktunarmann/menn ársins 2015
14:30 Erindi um markaðssetningu íslenska hestsins – Guðný Káradóttir frá Íslandsstofu
15:30 Kaffihlé
15:45 Umræður
Allir velkomnir!
Til upprifjunar fylgir hér listi yfir þau bú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins (í stafsrófsröð):
Brautarholt, Björn Kristjánsson og Snorri Kristjánsson
Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundson og Sveinbjörn Bragason
Hof I, Þorlákur Örn Bergsson
Ketilsstaðir/Syðri-Gegnishólar, Bergur Jónsson og Olil Amble
Miðás, Ásta Berghildur Ólafsdóttir og Gísli Sveinsson
Stóra-Vatnsskarð, Benedikt G. Benediktsson
Torfunes, Baldvin Kr. Baldvinsson
Ytra-Vallholt, Björn Grétar Friðriksson og Harpa H. Hafsteinsdóttir
Þóroddsstaðir, Bjarni Þorkelsson og fjölskylda
Þúfur, Gísli Gíslason og Mette Mannseth
Styttu haustið með EiðfaxaTV