Hrossaræktin 2017

  • 20. október 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í Harðarbóli, félagsheimili hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ, laugardaginn 28. október.

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í Harðarbóli, félagsheimili hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ, laugardaginn 28. október nk. Margt fróðlegt verður þar á dagskrá; áhugaverðir fyrirlestrar um nýjar rannsóknarniðurstöður, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar. 

Einar Ásgeirsson og Tanja Rún Jóhannsdóttir luku meistaranámi í búvísindum í vor við Sænska Landbúnaðarháskólann, SLU. Þau könnuðu áhrif holdastigs hrossa á lífeðlisfræðilega þætti; Einar kannaði áhrif holdastigs á frammistöðu í kynbótasýningum, endurheimt hrossanna og hreyfifræðilegt jafnvægi og Tanja skoðaði áhrif holdastigs á efnaskiptasvörun í tengslum við fóðrun og þjálfun. Þá mun Gunnar Reynisson, sem lauk sínu meistaranámi í búvísindum við Landbúnaðarháskóla Íslands í sumar, kynna niðurstöður síns lokaverkefnis. Það fjalllaði um gangtegundagreiningar á tölti og skeiði hjá íslenska hestinum og sýnir fram á þann breytileika sem fyrir hendi er innan þessara gangtegunda hvað var t.d. takt, skreflengd, hraða og svif og hvað einkennir afrekshross á þessum gangtegundum.  Hér er því um afar spennandi rannsóknar niðurstöður að ræða sem líklegt er að margir hafi áhuga á. 

Á ráðstefnunni mun Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar, einnig fara yfir sýningarárið og það helsta sem er að gerast þessa dagana í hrossaræktinni. Þá munu fara fram verðlaunaveitingar en það má nefna að í ár hljóta fimm hryssur heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Einnig munu tilnefnd ræktunarbú taka við sínum viðurkenningum en í ár eru ellefu bú eða aðilar tilnefndir til heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands: ræktunarmaður ársins. 

Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta.  

Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:

Laugardagur 28. október 2017

12:30 Setning – Sveinn Steinarsson formaður fagráðs og FHB

12:40 Hrossaræktarárið 2017 – Þorvaldur Kristjánsson

13:00 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2017

13:30 Verðlaunaveitingar:

-Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins (aldursleiðrétt)

-Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)

-Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi

13:45 Einar Ásgeirsson – Áhrif holdastigs á frammistöðu í kynbótasýningum

14:10 Tanja Rún Jóhannsdóttir – Áhrif holdastigs á efnaskiptasvörun í tengslum við fóðrun og þjálfun

14:30 Kaffihlé

14:45 Gunnar Reynisson – Gangtegundagreiningar á tölti og skeiði

15:15 Viðurkenningar fyrir tilnefnda ræktunarmenn ársins 2017

Fundarslit um 16:00

Allir velkomnir!

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link