Dagskrá Hrossaræktarráðstefnunnar

  • 18. september 2024
  • Fréttir
Á dagskrá eru afar áhugaverður fyrirlestur um nýjungar í kynbótamati í hrossarækt, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar.

Hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fer fram í Reiðhöllinni í Víðidal (veislusalur á efri hæð), laugardaginn 12. október og byrjar klukkan 13:00. Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Á dagskrá eru: afar áhugaverður fyrirlestur um nýjungar í kynbótamati í hrossarækt, yfirferð yfir hrossaræktarárið og verðlaunaveitingar. Allir eru velkomnir á ráðstefnuna.

Dagskrá hrossaræktarráðstefnunnar er eftirfarandi:

Laugardagur 12. október 2024

  • 13:00 Setning – Nanna Jónsdóttir formaður fagráðs og deildar hrossabænda hjá Bændasamtökum Íslands
  • 13:10 Hrossaræktarárið 2024 – Þorvaldur Kristjánsson
  • 13:30 Heiðursverðlaunahryssur fyrir afkvæmi 2024
  • 13:45 Verðlaunaveitingar:
    • -Verðlaun, knapi með hæstu hæfileikaeinkunn ársins (án áverka)
    • -Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Alhliða hross (aldursleiðrétt)
    • -Verðlaun, hæsta aðaleinkunn ársins – Klárhross (aldursleiðrétt)
    • -Verðlaun, hæsta litförótta hryssa ársins í kynbótadómi
  • 14:15 Þorvaldur Árnason – Hvernig er best að nýta keppnisdóma í kynbótamatinu? Spennandi nýjungar sem áhugavert er að kynna sér og ræða!
  • 15:30 Viðurkenningar fyrir tilnefnd ræktunarbú ársins 2024

Fundarslit um 16:15

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar