„Hrossið á alltaf að njóta vafans svo við ákváðum að draga okkur úr liðinu“
Ingibergur Árnason og Sólveig frá Kirkjubæ hafa dregið sig úr landsliðinu og munu ekki keppa fyrir Íslandshönd á Heimsmeistaramótinu í ágúst.
Ástæðan mun vera sú að hryssan féll á læknisskoðun sem gerð var í tenglsum við sölu á hryssunni. „Sólveig var búin að fara í gegnum viðamikla læknisskoðun áður en við vorum valin í liðið sem hún stóðst. Fyrir örstuttu síðan fór hún í ítarlegri skoðun vegna þessa að við vorum búin að selja hana. Þar kemur í ljós lítil bólga í afturfæti. Hrossið á alltaf að njóta vafans svo við ákváðum að draga hana úr liðinu,“ segir Ingibergur aðspurður hvers vegna hann tekur þá ákvörðun að draga Sólveigu úr liðinu.
„Ef hún er ekki í 100% í lagi þá er maður ekki að mæta með hana á Heimsmeistaramót þar sem maður ætlar sér stóra hluti. Hún mun jafna sig á þessu og við mætum sterk til leiks á Landsmót í Reykjavík. Ég óska mínum liðsmönnum mikið góðs gengis á mótinu og mun fylgjast með spenntur,“ segir hann að lokum.
Þar sem skráningarfresti er lokið þá mun eflaust annar hvor varahestur liðsins fylla skarð þeirra Ingibergs og Sólveigar.

Ingibergur og Sólveig Mynd: Jón Björnsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH