Hrossin eru í vetrarham ennþá
Eiðfaxi.is hringdi í Svein Ólafsson dýralækni hjá Dýralæknaþjónustu Suðurlands á Selfossi og spurði hann frétta af hestaheilsu á Suðurlandi.
„Það er nú allt frekar rólegt“ sagði Sveinn, „það helsta sem er í gangi núna eru einstaka hrossasóttartilfelli. Hrossin eru að koma á hús og breytingin er náttúrulega mikil, bæði umhverfis og fóðurbreyting.“
Er eitthvað sem Sveinn vill ráðleggja fólki í því sambandi?
„Það þarf að fara rólega af stað í fóðrun hrossanna, sérstaklega fyrstu vikuna. Gefa þeim færi á að aðlagast bæði breyttum aðbúnaði sem og fóðri,“ sagði Sveinn.
„Það er lítið um meiðsl ennþá, hrossin eru róleg á þessum árstíma, eiginlega í vetrarhamnum þannig að ekki er mikið um slagsmál í gerðum. Fólk þarf hins vegar að hafa gætur á þeim úti í gerðunum þegar meiri sæld fer að koma fram og eldið að skila sér í aukinni orku. Þá förum við oft að sjá sár eftir skeifnaskaflana. Það sama á við um álagsmeiðsl og ágrip. Þau koma með aukinni þjálfun þegar keppnistímabilið hefst. Menn þurfa bara að fara varlega um gleðinnar dyr“, sagði Sveinn að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson