Hryssu kippt aftur í bóglið

  • 1. október 2023
  • Fréttir

Skjáskot úr myndbandinu

Ingunn Reynisdóttir dýralæknir vann ákveðið afrek á Bessastöðum í Vestur-Húnavatnssýslu í gær þegar hún kippti slasaðir hryssu aftur í bóglið.

Gáfa frá Bessastöðum var á leið í haustfrí sem byrjaði með slagsmálum við bræðurhennar sem endaði á því að hún fór úr bóglið. Ingunn segist ekki vita til þess að þetta hafi verið gert áður hér á Íslandi en hún hafi fundið erlenda grein um aðferðina.

„Það var annað hvort að prófa þetta eða aflífa hryssuna,“ segir Ingunn en myndband af því þegar hryssan er sett í lið fylgir hér með fréttinni. Nú tekur við langt endurhæfingarferli hjá hryssunni sem fyrst um sinn má ekkert hreyfa sig né leggjast niður.

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link