Hugað að Heimsmeistaramóti
Landsliðsnefnd LH boðar til opins fundar um málefni íslenska landsliðsins í húsakynnum Líflands, Brúarvogi 1-3 kl. 18:00 í kvöld.
„Allir áhugasamir hvattir til að mæta. Á fundinum gefst öllum gott tækifæri til að kynna sér það starf sem er í gangi vegna þátttöku Íslands á heimsmeistaramótinu í Berlín 2013, hvernig skipað verður í landslið Íslands fyrir það mót og hverjar áherslur liðsstjóra liðsins eru,“ segir í tilkynningu en Hafliði Halldórsson liðsstjóri mun fara yfir stefnu sína fyrir mótið sem haldið verður 4.-11. ágúst á næsta ári.
Fundarefni kvöldsins er:
* Lykill kynntur ásamt úrtöku og hvernig fyrirkomulag verður á henni
* Liðsstjóri kynnir sig og að hverju hann stefni og áherslur hans í vetur
* Stjórnarmaður FEIF kynnir hvað sé helst á dagskrá hjá þeim
* Farið yfir helstu verk nefndarinnar fram að móti
* Umræður
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH