Meistaradeild KS í hestaíþróttum „Hugarfarið og gáfurnar eru höfuðkostir Þráins“

  • 29. apríl 2021
  • Fréttir

Þórarinn kampakátur í viðtali við Gunnlaug Bjarnason, rýnanda og spyrils TindastólsTV. Mynd: Birgit Zimmermann

„Þráinn er yfirburðahestur á gangtegundum og sannkallaður glæsigripur. Það sem er þó hans sterkasta hlið, að mínu mati, er hugarfarið. Það er þessi yfirvegun og gáfur sem fylgja honum og eru hans höfuðkostir, en hann er alveg einstakur að því leyti.“ Segir Þórarinn Eymundsson aðspurður hvernig hann lýsi Þránni frá Flagbjarnarholti í nokkrum orðum. Þeir félagar sigruðu í sterkri fimmgangskeppni í Meistaradeild KS í gærkvöldi. Niðurstöður kvöldsins má skoða með því að smella hér. 

Sigri fagnað. Mynd: Birgit Zimmermann

En hvernig var sigrinum fagnað? „Ég gerði í sjálfu sér ekkert sérstakt í tilefni af sigrinum. Það var bara notalegt kvöldkaffi með fjölskyldunni og notið stundarinnar með skagfirskt sólarlag í sjónmáli.“

Eðlilegt að pressa fylgi Þránni

Þráinn er hæst dæmdi stóðhestur allra tíma í kynbótadómi, finnur Þórarinn fyrir aukinni pressu við það að koma fram með hann í keppni af þeim völdum? „Já það má alveg segja það. Það er samt góð pressa, mér finnst það eðlilegt að það sé eftirvænting hjá áhorfendum að sjá svo hátt dæmda og þekkta hesta. Það eru samt forréttindi að vera með hest eins og Þráinn og pressuna sem fylgir því þarf maður bara að díla við.“ Að lokinni forkeppni var hlutskipti þeirra félaga að vera í þriðja sæti var það þægilegt að koma inn í úrslit og hafa allt að vinna? „Já ég er ekki frá því. Ég náði upp mjög góðri stemningu í mér og hestinum með keppnisskapið að vopni, svo held ég að það hafi gert sigurinn enn þá sætari fyrir vikið. Það gekk nánast allt upp hjá okkur í úrslitunum og hann var eins og hugur minn allan tímann.“

 

Hver er stefnan með Þráinn núna í framhaldinu? „Stefnan í vor er að taka þátt í allavega einu móti og njóta vorblíðunnar. Hann fer síðan í sæðingar til Vignis í Hemlu í byrjun júní og svo út í hólf í júlí.“ Íslandsmótið í hestaíþróttum er haldið á þínum heimavelli, kitlar ekkert að hafa hann á járnum og mæta á það? „Það væri auðvitað gaman en það er búið að gera áætlanir og það mun standa. Það koma tímar og ráð með Þráinn og við sjáum hvað framtíðin ber í skauti sér.“

 

Þórarinn og Þráinn á tölti. Mynd: Birgit Zimmermann

Fram undan er lokakvöldið í Meistaradeild KS þann 7.maí. Hvernig horfir keppnistímabilið í deildinni við Þórarni og hverju teflir hann fram á lokakvöldinu? „Deildin hefur gengið vel í vetur og ég mér finnst það til bóta sú breyting að byrja seinna í árinu en verið hefur. Það munar miklu að geta hitað upp utanhúss í sólskini en ekki vetrarhörku. Utanhústímabilið er líka á næsta leyti og maður nær því að tengja þjálfunina betur. Stemningin hefur verið góð og maður er þakklátur fyrir þá áhorfendur sem geta og mega mæta á pallana og gefa manni klapp fyrir góða sýningu. Varðandi lokamótið að þá er ég vel hestaður og hef úr fleiri en einu hrossa að velja. Ég er að spá í að tefla fram nýju hrossi í tölti, Þrá frá Prestsbæ, hún hefur ekki mætt áður í keppni en er með háan kynbótadóm og er gríðarlegt efni í keppnishross. Svo er ég með gamalreyndan meistara í skeiðið, Gullbrá frá Lóni, hún er eitt af mínum uppáhaldshrossum og stendur mér mjög nærri og nær vel til mín.“. Segir Þórarinn Eymundsson að lokum. Eiðfaxi þakkar honum fyrir spjallið og óskar velgengni á lokakvöldi Meistaradeildar KS og þeim verkefnum sem fram undan eru.

 

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link