Huginn fallinn

  • 14. janúar 2013
  • Fréttir
Huginn fallinn

Huginn frá Kjartansstöðum er fallinn 32 vetra að aldri. Huginn kom úr ræktun Þorvaldar Sveinssonar og var undan Náttfara frá Ytra-Dalsgerði og Ternu frá Kirkjubæ.

Huginn var eftirtektaverður gæðingur í lok síðustu aldar. Hann var margfaldur sigurvegari í töltkeppnum en átti ekki erfitt með að bregða sér á skeið og var sigursæll á þeim vettvangi. Auk þess að vera Íslandsmeistari í fimmgangi sigraði hann fimmgangskeppni Heimsmeistaramótsins árið 1995. Síðar var hann seldur August Beyer og Susanne George og hefur hann lifað góðu lífi í Norður-Þýskalandi og var síðast gleðigjafi  í reiðskóla Margot  Großfeld.

Í framhaldi hugmynd sem Sigurður V. Matthíasson varpaði fram í viðtali við Eiðfaxa um Huginn árið 2011 (sem má nálgast hér) hóf Susanne að safna saman þekktum kempum til að koma fram á Heimsmeistaramótinu í Berlín og var ætlunin að Huginn myndi leiða hóp aldinna hetja á mótinu.

Huginn átti marga félaga hérlendis sem erlendis sem hugsa hlýtt til gæðingsins nú. „Huginn er ótrúlegur hestur. Hann er gríðarlegur karakter og er alltaf ofarlega í huga mér. Hver reiðtúr var unaðslegur og það var alltaf skemmtilegt að vinna með honum. Hann gat verið stór upp á sig og var mikið viljugur en samt alltaf þjáll. Hann var alltaf tilbúinn að leggja allt undir í það sem ég bað,“ sagði Sigurður V. Matthíasson um Huginn.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link