Huginn frá Haga á Seljabrekku

  • 26. júlí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Gefur mýkt og vekurð.

Huginn frá Haga er í girðingu á Seljabrekku í Mosfellsdal og verður út sumarið. Huginn hefur verið að koma vel út með afkvæmi sín en búið er að sýna 58 afkvæmi hans í kynbótadómi, þar af eru 22 með aðaleinkunn yfir 8.00 og 28 með einkunn yfir 7.90.

Afkvæmi hans eru geðgóð og mjúk alhliðahross og hópinn prýða m.a. hestagullið Mýkt frá Seljabrekku og Landsmótssigurvegarinn Gletta frá Þjóðólfshaga, ásamt alhliða gæðingunum Feldi frá Hæli og Eldfara frá Stóru-Ásgeirsá sem eru báðir með 9.5 fyrir skeið.

Folatollurinn kostar 190 þúsund krónur og er innifalið er vsk., girðingargjald og ein sónarskoðun.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link