Hugmyndaríkir Háfetar

  • 12. maí 2011
  • Fréttir
Hugmyndaríkir Háfetar

Hestamannafélagið Háfeti á Þorlákshöfn stóð fyrir karlareið laugardaginn 30. apríl sl. Mættu í reiðina galvaskir hestamenn, fögnuðu saman og nutu reiðtúrsins. Sem er kannski ekki frásögufærandi nema fyrir þá staðreynd að allir voru karlarnir uppáklæddir sem konur. Sumir voru stífmálaðir, aðrir í fögrum blómakjólum og enn aðrir höfðu föndrað á sig myndarlegan barm.

Þannig eru karla- og kvennareiðir Háfeta þematengdar, og nú ætla konurnar ekki að slá slöku við. Því má búast við fjöldanum öllum af ríðandi strumpum í Þorlákshöfn nk. laugardag 14. maí. Kvennareiðin verður af stað frá reiðhöllinni kl. 17. Miðasala á viðburðinn fer fram í félagsheimilinu í kvöld miilli kl. 20-21 að er fram kemur á flettismetti félagsins.

Húrra fyrir sniðugum Háfetum!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link