Hugum að útigangshrossum

  • 29. desember 2012
  • Fréttir
Hugum að útigangshrossum

Hættustigi almannavarna hefur nú verið lýst yfir vegna óveðurs sem spáð hefur verið á vestan- og norðanverðu landinu.  Búast má við miklu illviðri og ófærð. Í slæmu veðri sem þessu er mikilvægt að huga að því að útgangshross hafi nóg skjól og fóður.  

Íslenski hesturinn þolir útigang mjög vel svo lengi sem hann hefur aðgang að fæðu og skjóli.  Útigangshrossin þurfa þó að vera vel búin undir veturinn og hafa næg tækifæri til að safna vetrarforða.
 
„Hestar þola kulda og staðviðri mjög vel.  Hins vegar þola þeir raka og veðurumskipti verr.  Sífelldar breytingar frá frosti í þíðu eru hestinum skeinuhættar.  Slíkar breytingar geta haft í för með sér verulega kólnun. Nauðsynlegt er að huga að því að einstaklingar sem eru að vaxa og fylfullar hryssur fái nóg, þar sem alltaf er hætta að þau verði afétin,“ segir Helgi Sigurðsson dýralæknir í bók sinni Hestaheilsa meðal annars um útigangshross. 
 
Hér má sjá reglugerð um um aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa.
Í tólftu reglugerð um skjól í hrosshögum segir:
 
„Hross sem ganga úti frá 1. október til 1. júní skulu geta leitað skjóls fyrir veðri og vindum. Þar sem fullnægjandi náttúruleg skjól eru ekki fyrir hendi skulu hross hafa aðgang að manngerðum skjólveggjum sem ganga í þrjár stefnur eða mynda með öðrum hætti skjól úr öllum áttum. Hver skjólveggur skal vera að lágmarki 2,5 m á hæð og 4 m á lengd eða svo stór að öll hross hjarðarinnar fái notið skjóls. Skjólveggirnir skulu traustlega byggðir þannig að þeir valdi ekki slysahættu né hræðslu hjá hrossunum. Eftirlitsaðilar skv. 3. mgr. 3. gr. fylgjast með því að skilyrði 1. mgr. séu uppfyllt. Umhverfi, hönnun og viðhald húsa og skýla skal vera þannig að ekki valdi slysum og gripir haldist hreinir. “
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link