Hugum að velferð hrossa um áramót

  • 31. desember 2020
  • Fréttir

Nú þegar aðeins eru nokkrar klukkustundir eftir af 2020, er vert að minna hestamenn alla á að búa svo um hnúta að ferfætlingar verði í öruggu skjóli frá þeim eldglæringum og hávaða sem jafnan fylgir flugeldaskotum gamlárskvöldsins. Matvælastofnun hefur sent frá sér tilmæli til allra eigenda og umráðamanna dýra þess efnis

Dýraeigendur, sérstaklega þeir sem eiga hunda, ketti og hesta, kannast vel við þann óróa og angist sem dýr þeirra ganga í gegnum á þessum tíma vegna látanna sem fylgir flugeldaskotum. Dæmi eru um að hundar sleppi og hlaupi fyrir bíla eða á fjöll. Hestar úti í haga eru sérlega í hættu. Fjölmörg dæmi eru um að hestar hafi fælst við flugelda, brotist út úr girðingum og hlaupið til fjalla eða í veg fyrir bílaumferð, og valdið slysum á sjálfum sér og öðrum. Hestar eru mikil hópdýr svo ef einn hleypur af stað getur allur hópurinn fylgt. Einnig eru margir komnir með hesta á hús á þessum tíma og farnir að stunda útreiðar. Óþarfi er að lýsa því hvað getur gerst ef flugeldum er skotið upp rétt hjá eða yfir fólki við útreiðar.

Það helsta sem hægt er að gera er eftirfarandi:

  • Hestum sem komnir eru á gjöf í hesthúsum skal gefið vel, hafa ljósin kveikt og útvarp í gangi.
  • Gott er að gefa hestum vel sem eru á útigangi og halda þeim á kunnuglegum slóðum, þar sem þau fara sér síður að voða ef hræðsla grípur þá. Ef hægt er að setja hesta inn er það öruggast.
  • Eigendur ættu helst að fylgjast með hestunum ef því er komið við, eða alla vega vitja þeirra sem fyrst eftir lætin.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link