„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Hafþór Heiðar kampakátur með sigur í unglingaflokki á LM2016. Ljósmynd: Eiðfaxi
Tíminn flýgur! Í sumar snýr Landsmót hestamanna aftur heim í að Hólum í Hjaltadal. Mörg okkar muna stemninguna árið 2016, þegar Landsmót fór síðast fram á Hólum, eins og hún hefði átt sér stað í gær. Við skulum rifju upp helstu augnablikin frá því móti til að hita upp fyrir sumarið, nú beinum við sjónum okkar að keppni í unglingaflokki.
Jöfn keppni en Hafþór hafði það
Keppni í unglingaflokki á mótinu árið 2016 var jöfn og spennandi og vannst sigur með minnsta möguleika mun. Það var Hafþór Hreiðar Birgisson á Villimey frá Hafnarfirði sem sigraði keppinauta sýna með einkunnina 8,81 í úrslitum. Í öðru sæti varð Hákon Dan Ólafsson á Gormi frá Garðakoti með einkunnina 8,81 í þriðja sæti varð svo Þóra Birna Ingvarsdóttir á Þóri frá Hólum með 8,72 í einkunn.
Hafþór leiddi að lokinni sérstakri forkeppni með 8,62 í einkunn en að loknum milliriðlum var hann í 5.sæti með 8,52 í einkunn. Í milliriðlum var það Egill Már Þórsson sem tók forystuna á Sögu frá Skriðu með 8,66 í einkunn hann endaði svo í 5.sti í úrslitum með 8,65.

Hákon Dan og Hafþór Hreiðar takst í hendur þegar úrslit höfðu verið tilkynnt
„Þrjóskan kom okkur svona langt“
Þegar Hafþór Hreiðar lítur til baka til Landsmótsins á Hólum 2016 er sigurinn í unglingaflokki það fyrsta sem kemur upp í hugann, ásamt eftirminnilegu „Hross í oss“ atriði í verðlaunaafhendingunni. Hann minnist sérstaklega góðrar stemningar í brekkunni og gæðanna í A-flokki sem hann horfði á úr brekkunni.
En hvernig hross var Villimey. „Hún er mjög sérstök í alla staði – frekar smágerð og krúttleg á húsi þar til maður fór á hana, en þá bjó hún yfir gríðarlegri orku og getu,“ segir Hafþór. Hann lýsir Villimey sem einstaklega viljugri og næmri með yfirburðar rými, en einmitt næmnin var það sem hann þurfti að vinna mest með. „Það sem kom okkur svona langt er sennilega þrjóskan í okkur báðum.“
Nú, tíu árum síðar, stefnir Hafþór aftur á Hóla með nokkur hross í takinu og er spenntur fyrir sýningum og keppni vorsins. „Ef það tekst ekki að koma hrossum inn á Landsmót í keppni eða kynbótasýningu er samt stefnan sett á að mæta og hafa gaman með fjölskyldu og vinum,“ segir hann, en hann horfir líka lengra fram í tímann: „Ég hlakka til að mæta svo aftur eftir önnur tíu ár með einn gutta í barnaflokkinn, mögulega á afkvæmi Villimeyjar.“ Þar vitnar hann til þess að hann sé nú nýbakaður faðir.
Við skulum rifja augnablikið upp og heyra viðtal við Hafþór Hreiðar sem tekið sem úr umfjöllunarþætti um Landsmót 2016 sem sýndur var á RÚV og er einnig að finna í Gullkistunni á EiðfaxaTV.
Sigurvegarar í Unglingaflokki á Landsmóti
2024 Ída Mekkín Hlynsdóttir, Marín frá Lækjarbrekku 2, Hornfirðingur 8,96
2022 Sigurður Steingrímsson, Hátíð frá Forsæti II, Geysir 8,96
2018 Benedikt Ólafsson, Biskup frá Ólafshaga, Hörður 8,70
2016 Hafþór Hreiðar Birgisson, Villimey frá Hafnarfirði, Sprettur 8,82
2014 Þórdís Inga Pálsdóttir, Kjarval frá Blönduósi, Stígandi 8,90
2012 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Blæja frá Háholti, Geysir 8,82
2011 Jóhanna Margrét Snorradóttir, Bruni frá Hafsteinsstöðum, Máni 8,71
2008 Arnar Logi Lúthersson, Frami frá Víðidalstungu II, Hörður 8,79
2006 Sara Sigurbjörnsdóttir, Kári frá Búlandi, Fákur 8,73
2004 Valdimar Bergstað, Kólfur frá Stangarholti
2002 Freyja Amble Gísladóttir, Muggur frá Stangarholti 8,84
2000 Freyja Amble Gísladóttir, Muggur frá Stangarholti 8,77
1998 Karen Líndal Marteinsdóttir, Manni frá Vestri-Leirárgörðum, Dreyri 8,69
1994 Sigríður Pjetursdóttir, Safír frá Ríp, Sörli 8,62
1990 Edda Rún Ragnarsdóttir, Sörli frá Norðtungu, Fákur 9,04
1986 Hörður Á Haraldsson, Háfur frá Lágafelli, Fákur 8,54
1978 Þórður Þorgeirsson, Kolki 8,63
„Hún bjó yfir gríðarlegri orku og getu“
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS