„Hún er vel gerð, stór og myndarleg“
Rauðhetta frá Þorlákshöfn
Eiðfaxi heldur áfram að skoða kynbótamatið og að þessu sinni trippi á tamningaaldri, eða fædd 2018.
Þar efst á lista er Rauðhetta frá Þorlákshöfn með 128 stig í aðaleinkunn og 135 stig í aðaleinkunn án skeiðs. Rauðhetta er í eigu Svarthöfða – Hrossarækt en hún er ræktuð af Þórarni Óskarssyni. Rauðhetta var í tamningu hjá Ólafi B. Ásgeirssyni á Sumarliðabæ en Ólafur sagði í samtali við Eiðfaxa að þetta væri efnileg hryssa. „Hún er mjög efnileg og tamdist mjög vel. Hún er vel gerð, stór og myndarleg. Ég hef trú á henni, hún lagðist mjög vel í mig,“ segir Ólafur en Rauðhetta er nú í smá fríi og verður haldið áfram tamningu eftir jól.
Rauðhetta er á toppnum á báðum listum (aðaleinkunn og aðaleinkunn án skeiðs). Hún er undan Sendingu frá Þorlákshöfn en Sending sló í gegn með knapa sínum, Helgu Unu Björnsdóttur, þegar hún hlaut 10 fyrir tölt, 8,70 fyrir hæfileika, 8,55 fyrir sköpulag og 8,64 í aðaleinkunn. Sending á eitt sýnt afkvæmi, Konsertsdótturina, Hendingu frá Fákshólum en hún hlaut í sumar 8,45 í aðaleinkunn. Faðir Rauðhettu er Ísak frá Þjórsárbakka, Ísak er einkar fallegur en hann hefur hlotið 8,84 fyrir sköpulag, fyrir hæfileika 8,45 og í aðaleinkunn 8,61. Ísak á eitt sýnt afkvæmi, Ísey frá Þjórsárbakka, og hlaut hún 8,19 í aðaleinkunn.
Efstu hross á tamningaaldri samkvæmt aðaleinkunn kynbótamats og aðaleinkunn án skeiðs.
| Nafn | Ae. | Ae. án skeiðs | Faðir | Móðir |
| Rauðhetta frá Þorlákshöfn | 128 | 135 | Ísak frá Þjórsárbakka | Sending frá Þorlákshöfn |
| Árangur frá Prestsbæ | 127 | 121 | Konsert frá Hofi | Þóra frá Prestsbæ |
| Skari frá Stuðlum | 127 | 121 | Glúmur frá Dallandi | Staka frá Stuðlum |
| Nn frá Syðri-Gegnishólum | 127 | 127 | Spaði frá Stuðlum | Álfhildur frá Syðri-Gegnishólum |
| Gnótt frá Hólum | 127 | 128 | Draupnir frá Stuðlum | Dóttla frá Hólum |
| Hátíð frá Ísalæk | 127 | 120 | Glúmur frá Dallandi | Brigða frá Brautarholti |
| Glóð frá Prestsbakka | 127 | 125 | Skýr frá Skálakoti | Gná frá Prestsbakka |
| Nn frá Hellubæ | 127 | 123 | Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum | Hamingja frá Hellubæ |
| Jaðraki frá Þjórsárbakka | 122 | 131 | Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | Gola frá Þjórsárbakka |
| Alfa frá Margrétarhofi | 123 | 130 | Kveikur frá Stangarlæk 1 | Hrísla frá Margrétarhofi |
| Toppur frá Strandarhjáleigu | 124 | 130 | Ísak frá Þjórsárbakka | Oktavía frá Feti |
| Ósk frá Lækjamóti | 120 | 127 | Hylur frá Flagbjarnarholti | Ósvör frá Lækjamóti |
| Ylur frá Lyngholti | 120 | 127 | Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | Röst frá Lyngholti |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH