Húrra fyrir Vestlendingum – myndir

  • 18. apríl 2011
  • Fréttir

Samtaka taktur Borgfirskra skessa. Myndir/GHP

Húrra fyrir Vestlendingum - myndir

Hver bekkur reiðhallarinnar Faxaborg í Borgarnesi var þéttsetinn sl. föstudagskvöld þegar Vesturlandssýningin 2011 fór fram.

Hestamannafélögin Dreyri, Glaður, Snæfellingur, Faxi og Skuggi og Hrossaræktarsamband Vesturlands stóðu að þessari fyrstu stórsýningu Vestlendinga þar sem sýnt var brot af því besta úr ræktun vestlenskra ræktunarbúa þar sem mikið fór fyrir efnilegum stóðhestum, ungir og upprennandi knapar voru kynntir og ófáir gæðingar þeystu í gegnum höllina á skeiði. 

Svanhvít Gísladóttir og Númi frá Lindarholti sýndu hve sterk vináttutengsl manns og hests geta orðið þegar þau skokkuðu saman um höllina og sýndu hinar ýmsu kúnstir án nokkurs stuðnings reiðtygja, Reynir Aðalsteinsson kom fram með frábæran hestakost og mannleg afkvæmi sín og uppskar mikið lófaklapp fyrir faglega sýningu. Þá fór kvennahópurinn Borgfirsku Skessurnar um höllina skrúðklæddar og sýndu margar liprar slaufur.

Áhorfendum virtist líka vel það sem fyrir augum bar, þótt eyrun hafi ekki alltaf numið það sem kynnir hafði um atriðin að segja, líkt og hljóðstjórnandi hafi verið eitthvað tregur til að skrúfa eilítið upp í hljóðkerfi hússins.

Það hafði þó lítil áhrif á hrifningu Eiðfaxa á vestlenskum hestakost og skemmtilegum atriðum. 

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Vesturlandssýningunni 2011.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link