Hvaða hestum tefla Árni og Ísólfur fram?
Töltkeppni Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram næstkomandi fimmtudag í Fákaseli. Stífar æfingar eru búnar að vera hjá knöpunum og munu ráslistar liggja fyrir á morgun, að er fram kemur í frétt frá Meistarardeildinni.
„Helga Una Björnsdóttir mætir eflaust með Vág frá Höfðabakka en þær Vág vöktu mikla athygli á síðasta ári og voru meðal annars í úrslitum á Landsmóti. Heyrst hefur að Daníel Jónsson og Arion frá Eystra-Fróðholti hafi verið í feikna stuði á æfingu um helgina og spennandi verður að sjá hvort þeir félagar mæti í brautina en Arion eins og flestir vita er með 10 fyrir tölt og hægt tölt.
Gaman verður að sjá hvað þeir Ísólfur Líndal Þórisson og Árni Björn Pálsson mæta með en Ísólfur trónir á toppnum í einstaklingskeppninni með 30 stig. Ísólfur var í A úrslitum á síðasta Landsmóti á Kristófer frá Hjaltastaðahvammi og hafa þeir félagar verið að gera góða hluti í deildinni hingað til. Árni Björn er annar í einstaklingskeppninni og ætlar sér eflaust að standa uppi sem sigurvegari. Árni hefur í höndum sér sterkasta töltara landsins, Storm frá Herríðarhól, svo gaman verður að sjá hvort hann muni tefla honum fram eða mæta með eitthvern annan.“
Töltið hefst kl. 20:00 á fimmtudaginn og mun beina útsending hefjast á sama tíma.
Efstu fimm í einstaklingskeppninni:
Einstaklingskeppni
Stig
Ísólfur Líndal Þórisson
30
Árni Björn Pálsson
23
Eyrún Ýr Pálsdóttir
16
Ólafur Brynjar Ásgeirsson
12
Daníel Jónsson
12
Staðan í liðakeppninni:
Liðakeppni
Stig
Auðsholtshjáleiga
140,5
Gangmyllan
122,5
Ganghestar/Margrétarhof
120,5
Top reiter/Sólning
108
Hrímnir/Export hestar
107
Heimahagi
102
Árbakki/Kvistir
101
Lýsi/Oddhóll/Þjóðólfshagi
97,5
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH