Hvaleyrarvatn open
Hvaleyrarvatn open verður 1. mars
Næsta laugardag heldur mótanefnd Sörla ísmót á Hvaleyrarvatni. Hefst mótið stundvíslega kl. 16.
Ísinn er góður, veðurútlit gott sem og færið.
Flokkar í boði:
+ karlaflokkur,
+ kvennaflokkur,
+ opinn flokkur
Skráningar berist á netfangið [email protected]. Eftirtalið þarf að koma fram:
+ Flokkur,
+ Nafn og kennitala knapa,
+ Nafn, uppruni og litur hests.
+ Hestamannafélag sem knapi/hestur keppa fyrir
Einnig er hægt að skrá sig í síma 821-4493, 694-9885 og
824- 2623 frá kl. 18 – 21 í dag og á morgun og kl. 10 – 12 á laugardag.
Skráningu lýkur kl. 12 þann 1. mars. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
Skráningargjald er 2.500 kr. á skráningu. Greiðist inn á reikning 0135– 26 – 002871, kt. 640269-6509. Sendið kvittun á [email protected]
Keppnisnúmer eru afhent í dómpalli milli kl. 11 og 12 á laugardaginn.
Peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.
Athugið: Engin ábyrgð er tekin á knöpum né hestum á vatninu.
Mótanefndin áskilur sér rétt til að fresta mótinu með stuttum fyrirvara ef aðstæður breytast. Því er mikilvægt að fylgjast vel með auglýsingum frá mótanefnd á heimasíðu og fésbókarsíðum Sörla.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH