Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Hver sigrar slaktaumatöltið í kvöld?

  • 10. febrúar 2022
  • Fréttir
Ágiskunarleikur Eiðfaxa – Verðlaun í boði!!

Annað mót Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum er í kvöld en ráslistinn var birtur í gærkvöldi. Eiðfaxi stóð fyrir ágiskunarleik fyrir síðasta mót með góðum undirtektum og höldum við því áfram.

Allir geta tekið þátt með því að skrifa í kommenta kerfið á facebook hverjir þau telja að ríði til úrslita og hver standi uppi sem sigurvegari í hverri keppnisgrein. Í boði fyrir hverja grein verða verðlaun fyrir þann sem hlutskarpastur er.

Nú er í verðlaun 10.000 kr. gjafabréf á einn af þessum veitingastöðum; Kaffi Krús, Tryggvaskáli, Messinn á Lækjargötu, Messinn á Selfossi (opnar í vor), Vor eða Konungskaffi.

Til þess að koma þessu öllu af stað höfum við fengið fjóra hestamenn til þess að spá fyrir um úrslit. Eru þessir aðilar fulltrúar síns landshluta.

Endilega að taka þátt á facebook og spá fyrir um hvernig þú telur að endanleg niðurstaða verði að úrslitum loknum og þú getur unnið 10.000 kr. gjafabréf

Ráslistann er að finna hér

Reglurnar eru einfaldar.

15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum

Ef sú staða kemur upp að einhverjir eru jafnir er skoðað hvort einhver af þeim er með réttan sigurvegara ef það nær ekki að skera úr um vinnigshafa er skoðaður fjöldi af réttum pörum í réttum sætum og síðan  hver af þeim er með fleiri knapa nær úrslitum.

Austurland

Reynir Atli Jónsson – tamningamaður og reiðkennari, Þórshöfn

  1. Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
  2. Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
  3. Glódís Rún Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá Skeggstöðum
  4. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
  5. Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti
  6. Teitur Árnason og Njörður frá Feti

Norðurland

Líney María Hjálmarsdóttir – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Tunguhálsi

Þetta er ekki auðvelt. Mér sýnist á þessum ráslista þá gætu allir unnið. Til að setja eitthvað niður

  1. Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
  2. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
  3. Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi

Svo hljóta þessir norðlendingar að geta eitthvað 😉 

Suðurland

Ómar Ingi Ómarsson – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Horni

  1. Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
  2. Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólsstað
  3. Hinrik Bragason og Kveikur frá Hrísdal
  4. Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
  5. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
  6. Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti

 

Vesturland

Klara Sveinsbjörnsdóttir – tamningamaður og reiðkennari

  1. Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
  2. Hinrik Bragason og Kveikur frá Hrísdal
  3. Teitur Árnason og Njörður frá Feti
  4. Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
  5. Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
  6. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Doðrant frá Vakurstöðum

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link