Hvetur til hjálmanotkunar
„Það er áhyggjuefni ef það þarf slys til að vekja fólk til umhugsunar um hjálmnotkun. Áskorunin er góðfúsleg ábending til reiðkennara og reynslumikilla knapa,“ segir Súsanna Sand Ólafsdóttir reiðkennari sem sendi fjölmiðlum í dag opinbera áskorun til atvinnuknapa að vera með hjálma þegar þeir þjálfa hesta sína.
Súsönnu sýnist eins og hjálmnotkun hafi fari minnkandi á síðustu tveimur árum. „Ég mæti oft á tíðum hjálmlausum atvinnumönnum, þekktum fyrirmyndum sem ungir krakkar líta upp til,“ segir Súsanna og minnir alla knapa á að hjálmaskylda er á landsmótssvæðinu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH