Í minningu Gísla Höskuldssonar

  • 14. desember 2021
  • Fréttir
Blessuð sé minning Gísla

Gísli Höskuldsson, sem oftast er kenndur við Hofsstaði í Hálsasveit, er riðinn um gjallarbrú. Hann kvaddi hinn jarðneska heim þann 12.desember og varð því 95 ára gamall og einum degi betur, en hann var fæddur þann 11.desember árið 1926 að Saurbæ í Villlingaholtshreppi.

Hann er hestamönnum öllum vel kunnur enda var hann áberandi á því sviði alla sína tíð, ræktaði ásamt konu sinni Kristfríði Björnsdóttur til að mynda hinn magnaða gæðing og ættarstólpa Gáska 920 frá Hofsstöðum og reið honum oft til sýninga. Þá kemur einnig upp í hugann sýning hans og samspil við hinn gráa gæðinga Hauk frá Hrafnagili.

Viðtal við Gísla birtist í jólablaði Eiðfaxa árið 2010 þar sem hann segir frá ýmsu á löngum ferli og í lok viðtalsins birtist eftirfarandi vísa eftir hann sem er lýsandi fyrir hans nálgun við hesta.

Veittu gleði í hestsins hug
og hafðu með í ráðum.
Allri reiði ýta á bug
oft það gagnast báðum.

Gísli verður jarðsunginn á laugardaginn 18.12. kl. 14:00. Streymt verður frá athöfninni á Snorrastofa.is

Starfsmenn Eiðfaxa votta fjölskyldu Gísla Höskuldssonar, vinum og ættingjum sína innilegustu samúð.

Blessuð sé minning Gísla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link