Í skjól fyrir jól

  • 7. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Samhjálp hestamanna í Herði

Félagar í hestamannafélaginu í Herði í Mosfellsbæ liggja ekki á liði sínu við að hjálpa náunganum. Eins og kunnugt brann hálf hesthúslengja til grunna í eldsvoða í hesthúsahverfi Harðar í haust. Stjórn félagsins brást strax við og setti í  gang verkefni til hjálpar þeim sem urðu fyrir mestu tjóni. Verkefnið nefnist „Í SKJÓL FYRIR JÓL“. Markmiðið er að Harðarfélagar leggist á eitt og hjálpist að við að endurbyggja hesthúsin og að eigendur þeirra geti tekið hrossin sín á hús fyrir jólin. Stofnaður hefur verið sérstakur söfnunarreikningur fyrir verkefnið. Sjá má frekari fréttir og upplýsingar um þetta göfuga verkefni á heimasíðu HARÐAR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link