Iben Norðurlandameistari í tölt
Síðustu úrslit dagsins og Norðurlandamótinu voru A úrslit í tölti. Það má með sanni segjast að það var mjótt á munum og mjög spennandi A úrslit. Fór það svo að þau enduðu jöfn í 1 – 3. sæti Arnór Dan Kristinsson, Filippa Montan og Iben Katrine Andersen öll með 7,78 í einkunn.
Eftir sætaröðun frá dómurum er það Iben Katrine Andersen á Gideon fra Tommerby Kær sem er Norðurlandameistari í tölti.
Niðurstöður úr A úrslitum í tölti í fullorðinsflokki
| 1-3 | Arnór Dan Kristinsson | Dökkvi frá Álfhólum | Finland | 7,78 |
| 1-3 | Filippa Montan | Lögg fra Slippen | Danmark | 7,78 |
| 1-3 | Iben Katrine Andersen | Gideon fra Tømmerby Kær | Danmark | 7,78 |
| 4 | Laura Midtgård | Gimsteinn frá Íbishóli | Danmark | 7,72 |
| 5 | Josefin Birkebro | Kjarval från Knutshyttan | Áfram Islandshästförening | 7,67 |
| 6 | Jóhann Rúnar Skúlason | Evert fra Slippen | Danmark | 0,00 |
Iben Norðurlandameistari í tölt