Ingimar Sveinsson er látinn
Ingimar Sveinsson, bóndi, kennari og hestamaður, er látinn, 98 ára að aldri. Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Ingimar Sveinsson, bóndi, kennari og hestamaður frá Egilsstöðum, lést 18. júní síðastliðinn á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ, 98 ára að aldri.
Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum.
Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995.
Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn.
Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið.
Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010.
Eiðfaxi vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Tinni slær heimsmet
Útför Ragnheiðar Hrundar Ársælsdóttur – Beint streymi