Ískaldar töltdívur
Viðburðurinn Ískaldar töltdívur verður haldinn í Samskipahöllinni í Spretti laugardaginn 20. febrúar. Mótið er haldið til að efla konur til keppni í hestaíþróttum og styrkja um leið landslið Íslands í hestaíþróttum. Skráningu er á sportfeng og lýkur á miðnætti mánudaginn 15. febrúar!
Fjórir flokkar verða í boði og því ættu allar konur að finna sér styrkleikaflokk við hæfi:
· Opinn flokkur (T1)
· Meira vanar (T3)
· Minna vanar (T7)
· Ungmennaflokkur (T3)
· Forkeppni í öllum flokkum
· A-úrslit – 7 efstu eftir forkeppni fara í úrslit.
· Sigurvegari opins flokks hlýtur þátttökurétt á Allra sterkustu 26. mars næstkomandi.
· Vegleg verðlaun og aukaverðlaun frá Líflandi og Ásbirni Ólafssyni.
· Landsmót hestamanna gefur 4 vikupassa sem dregnir verða úr hópi þeirra sem keppa í úrslitum.
· Glæsilegasta parið valið af dómurum.
· Skemmtiatriði í hléi
· Veitingasala
· Frábær stemning þar sem á annað hundrað metnaðarfullar hestakonur koma saman!
· Frítt inn!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH