Ískaldar töltdívur
Ískaldar töltdívur munu safnast saman í Samskipahöllinni laugardaginn 20. febrúar næstkomandi. Í ár verða keppnisgreinarnar eftirfarandi: T1 (Opin flokkur), T3 (Meira vanar), T7 (Minna vanar) og T3 (Ungmennaflokkur (18-21 árs)). Ungmenni geta skráð sig í aðra flokka eftir því hvað þeir treysta sér í.
Keppnin hefst með forkeppni, að henni lokinni verður skemmtiatriði í hléi og svo taka úrslitin við.
Skráningar verða dagana 8.-12. febrúar næstkomandi í gegnum skráningakerfi Sportfengs, skráningarfjöldi verður takmarkaður svo fyrstir koma fyrstir fá. Skráningargjöld kr. 6000.
Vonumst til að sjá sem flesta laugardaginn 20. Febrúar.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing