Ísköldum hestamönnum aflýst
Ísmótið Svellkaldar konur er vinsælt meðal hestakvenna.
Vegna lélegrar þátttöku á fyrra ísmóti LH „Ískaldir hestamenn“ hefur LH ákveðið að aflýsa mótinu næstkomandi laugardag.
,,Þeir sem þegar hafa skráð sig og greitt þátttökugjaldið munu fá endurgreitt á næstu dögum. Gott væri ef þeir aðilar myndu senda línu á [email protected] með fullu nafni, kennitölu og bankanúmeri. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.“
Enn stendur þó til að halda Svellkaldar þann 21. mars en allra jafnan hafa þau 100 pláss sem í boði eru á mótið fyllst á fyrsta skráningadegi. Skráningar hefjast þriðjudaginn 10. mars kl. 12:00 á hádegi. Skráningargjald er kr. 10.000 og rennur til styrktar landsliðinu Íslands í hestaíþróttum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH