Ísland er lang stærst þegar kemur að fjölda hrossa

  • 23. desember 2021
  • Fréttir
Hestamennskan í tölum

Alþjóðasamtökin FEIF taka saman ýmsar tölfræði upplýsingar sem varpa ljósi á umfang Íslandshestamennskunnar í heiminum. Þar kemur fram fjöldi skráðra íslenskra hrossa í aðildarlöndunum, sem nú eru orðin 22 talsins, auk fjölda félaga í Íslandshestafélögum.

Þegar rýnt er í tölurnar er hægt að fá út að hver Íslendingur, skráður í hestamannafélag, eigi 7,4 hesta hér á Íslandi. Í Þýskalandi reiknast 2,56 hestar á hvern félaga, 5,3 í Danmörku og 4,8 hross á mann í Svíþjóð.

Ísland er lang stærst þegar kemur að fjölda hrossa með 91.872 hross skráð á lífi en á eftir okkur eru Þýskaland með 66.450 hross, Danmörk þriðju með 44.038 hross og Svíþjóð þar á eftir með 35.966.

Þegar kemur að fólki skráð í hestamannafélög þá er Þýskaland með ríflega helmingi fleira fólk, 25.937 manns, en á Íslandi en þar er fjöldinn 12.500.

 

Land

Hross

Félagar
Ísland

91.872

12.500

Ástralía

294

75

Austurríki

7240

1.550

Bandaríkin

5.623

778

Belgía

1.910

149

Bretland

1.070

253

Danmörk

44.038

8.300

Færeyjar

359

160

Finnland

4.074

1.255

Frakkland

3.712

156

Holland

8.681

2.228

Ítalía

343

46

Kanada

84

Liechtenstein

4

51

Lúxemborg

369

53

Noregur

14.012

2.165

Nýja Sjáland

178

72

Slóvenía

381

16

Sviss

4.587

1.536

Svíþjóð

35.966

7.368

Ungverjaland

34

63

Þýskaland

66.450

25.937

Alls:

291.197

64.795


Heimild: FEIF.org

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link