Íslandsmeistarar í 250 m. skeiði
Það voru frábærar aðstæður til kappreiða á Hellu í morgun, eins og þær gerast best hér á landi. Ágætlega heitt, nánast logn og brautin góð.
Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II sigruðu 250m. skeiðið á tímanum 21,58 sek, sem er næst besti tími ársins. Þeir vörðu titilinn frá því í fyrra og er nú Íslandsmeistarar í 250 m. skeiði í fimmta sinn og er þetta fjórða mótið í röð sem þeir hreppa titilinn.
Í ungmennaflokki eru þau Íslandsmeistarar Þorvaldur Logi Einarsson og Skíma frá Syðra-Langholti. Fyrsti Íslandsmeistaratitilinn hjá þeim saman og það verður gaman að fylgjast með þeim þróast á skeiðbrautinni
Meistaraflokkur – Niðurstöður
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 21,58
2 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 21,82
3 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 22,06
4 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 22,27
5 Benjamín Sandur Ingólfsson Fáfnir frá Efri-Rauðalæk 22,39
6 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 22,51
7 Hinrik Bragason Púki frá Lækjarbotnum 22,59
8 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Villingur frá Breiðholti í Flóa 22,65
9 Árni Sigfús Birgisson Dimma frá Skíðbakka I 22,77
10 Jakob Svavar Sigurðsson Jarl frá Kílhrauni 22,82
11 Daníel Gunnarsson Kló frá Einhamri 2 22,99
12 Daníel Gunnarsson Eining frá Einhamri 2 23,25
13 Hanna Rún Ingibergsdóttir Birta frá Suður-Nýjabæ 23,57
14 Hans Þór Hilmarsson Jarl frá Þóroddsstöðum 0,00
Ungmennaflokkur – Niðurstöður
1 Þorvaldur Logi Einarsson Skíma frá Syðra-Langholti 4 23,86
2 Sigurður Baldur Ríkharðsson Hrafnkatla frá Ólafsbergi 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH