Íslandsmeistari seldur

  • 3. desember 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

Jakob Svavar varð Íslandsmeistari á Eldi.

Fer til þýskalands

Umtalsvert líf virðist vera í sölumálum þegar kemur að keppnishestum þetta haustið.

Stóðhesturinn Eldur frá Köldukinn hefur verið seldur og er nýr eigandi af þýsku bergi brotinn. Kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið.

Eldur er klárhestur fæddur 2006 undan Eldjárni frá Tjaldhólum og Njálu frá Njálsstöðum. Hann hlaut 8,13 í aðaleinkunn kynbótadóms og 8,23 fyrir kosti. Þar á meðal 9 fyrir tölt, vilja og geðslag, fegurð í reið, fet og hægt tölt. 

Eldur stóð sig vel síðastliðið keppnistímabili og varð meðal annars Ístöltsmeistari og Íslandsmeistari í fjórgangi með knapa sínum Jakobi Svavari Sigurðssyni. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link