Íslandsmeistarinn efstur

  • 8. maí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Forkeppni í slaktaumatöli hafin á Reykjavíkurmeistaramótinu.

Íslandsmeistararnir í slaktaumatölti Reynir Örn og Greifi frá Holtsmúla eru efstir í sömu grein á Reykjavíkurmeistaramótinu. Reynir og Greifi hlutu 8,13 í einkunn en í öðru sæti inn í úrslit er Sigurður V. Matthíasson og Andri frá Vatnsleysu með 7,63 í einkunn.

Í dag fer fram forkeppni í slaktaumatölti og tölti. Úrslit hefjast síðan á morgun og eru a úrslit á sunnudag.

Heildarniðurstöður úr T2 meistaraflokk:
1 Reynir Örn Pálmason / Greifi frá Holtsmúla 1 8,13 
2 Sigurður Vignir Matthíasson / Andri frá Vatnsleysu 7,63 
3 Hinrik Bragason / Stimpill frá Vatni 7,37 
4 Sigursteinn Sumarliðason / Nýr Dagur frá Þúfu í Landeyjum 7,27 
5 Sigursteinn Sumarliðason / Krókus frá Dalbæ 7,17 
6 Elin Holst / Frami frá Ketilsstöðum 6,97 
7 Sigurður Sigurðarson / List frá Langsstöðum 6,93 
8 Sigurður Sigurðarson / Freyþór frá Ásbrú 6,67 
9 Björn Einarsson / Hersir frá Lambanesi 6,57 
10 Viðar Ingólfsson / Kapall frá Kommu 6,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link