Íslandsmót: Alfa og Sigursteinn töltmeistarar
Landsmótssigurvegararnir Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá Blesastöðum 1A eru einnig Íslandsmeistarar 2011 í tölti. Hlutu Sigursteinn og Alfa einkunnina 9 í lokaeinkunn en í öðru sæti varð Landsmótsmeistari B-flokks gæðinga, Sigurður Sigurðarson og Kjarnorka frá Kálfholti. Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey, sem sigruðu B-úrslit í gær, hlutu þriðja sætið.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. Sigursteinn Sumarliðason og Alfa frá Blesastöðum 1A – 9,00
2. Sigurður Sigurðarson og Kjarnokra frá Kálfholti – 8,81
3. Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey – 8,39
4. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum – 8,39
5. Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – 8,28
6. Sigurbjörn Bárðarson og Jarl frá Mið-Fossum – 8,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH