Íslandsmót barna og unglinga hefst í dag!

  • 22. júlí 2026
  • Fréttir
Mikil þátttaka og allt í beinni á EiðfaxaTV

Íslandsmót barna og unglinga hefst í dag á Brávöllum á Selfossi og er það Hestamannafélagið Sleipnir sem hefur veg og vanda af mótinu. Sýnt er beint frá öllum keppnisgreinum á EiðfaxaTV. Hægt er að fylgjast með helstu tilkynningum frá mótshöldurum á Facebook síðu viðburðarins sem má fylgja með því að smella hér.

Skráning í mótið er mjög góð og eru skráningarnar alls um 450. Það verður því spennandi að sjá okkar unga og efnilega fólk takast á við keppnisgreinar hestamennskunnar en keppt er bæði í gæðinga- og íþróttakeppni.

Dagskrá dagsins í dag er forkeppni í fjórgangi og eru allir ráslistar aðgengilegir í snjallforriti HorseDay.  Keppnis hefst klukkan 11:00 á forkeppni í fjórgangi í unglingaflokki og seinni partinn er svo komið að fjórgangi í barnaflokki.

Miðvikudagur 22. júlí

11:00 Fjórgangur V1 Unglingaflokkur 1-20
13:00 Matarhlé
13:45 Fjórgangur V1 Unglinaflokkur 21-40
15:45 Kaffihlé
16:00 Fjórgangur V1 Unglingaflokkur 41-56
17:30 Matur
18:15 Fjórgangur V2 Barnaflokkur
20:15 Dagskrárlok

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link