Íslandsmót: Eyjólfur og Kraftur sigruðu B-úrslit fimmgangs
Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur frá Efri-Þverá tryggðu sér sæti í A-úrslitum fimmgangskeppni Íslandsmótsins. Þeir hlutu í lokaeinkunn 7,38 og voru aðeins nokkrum kommum á undan Íslandsmeistara gærdagsins, Hauki Baldvinssyni og Fal frá Þingeyrum sem hlutu 7,33 í lokaeinkunn.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. Eyjólfur Þorsteinsson og Kraftur f´ra Efri Þverá 7,38
2. Haukur Baldvinsson og Falur frá Þingeyrum 7,33
3. Mette Mannseth og Hnokki frá Þúfum 7,31
4. Hinrik Bragason og Sturla frá Hafsteinsstöðum 7,12
5. Páll Bragi Hólmarsson og Snæsól frá Austurkoti 7,07
6. Þórdís Gunnarsdóttir og Hreggviður frá Auðsholtshjáleigu 6,98
7. Daníel Ingi Smárason og Nói frá Garðsá 6,95
8. Guðmann Unnsteinsson og Prins frá Langholtskoti 6,62
9. Daníel Gunnarsson og Vindur frá Hala 6,60
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH